Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 31. júlí 2015 14:28
Elvar Geir Magnússon
Einar og Einar úr Fram í KV (Staðfest)
Einar Bjarni Ómarsson er kominn aftur í KV.
Einar Bjarni Ómarsson er kominn aftur í KV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV sem situr í fjórða sæti 2. deildarinnar hefur endurheimt Einar Bjarna Ómarsson og Einar Má Þórisson úr Fram.

KV er með 26 stig, sjö stigum frá öðru sætinu, en liðið féll úr 1. deildinni í fyrra.

Einar Bjarni er varnar- og miðjumaður en hann gekk í raðir Fram frá KV fyrir tímabilið 2014 þegar liðið var í Pepsi-deildinni. Hann hefur leikið átta leiki með Fram í 1. deild í sumar.

Vængmaðurinn Einar Már heldur áfram að skipta milli Fram og KV. Hann gekk í raðir KV 2012, fór í Fram fyrir tímabilið 2014 en skipti aftur í KV um mitt sumar. Hann fór svo aftur í Fram fyrir yfirstandandi tímabil en er nú kominn aftur í KV.

Einar Már hefur leikið þrjá leiki með Fram í 1. deildinni í sumar.


Athugasemdir
banner
banner