„Skrifaði Kai þetta?" er meðal þess sem hefur verið sent á Wayne Rooney, sóknarmann Manchester United á Twitter.
Rooney skrifaði kveðju til stuðningsmanna Manchester United að lokinni æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum og birti á samskiptamiðlinum vinsæla.
Handskriftin hjá Rooney þykir ekki upp á marga fiska og hefur kveðjan orðið uppspretta af gríni héðan og þaðan.
Kai er fimm ára sonur Wayne Rooney.
Enska úrvalsdeildin fer af stað á laugardaginn eftir viku en United á leik gegn Tottenham.
Athugasemdir