Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. júlí 2015 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Rodgers: Ibe verður frábær leikmaður
Jordon Ibe er spennandi leikmaður.
Jordon Ibe er spennandi leikmaður.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, telur að Jordon Ibe eigi eftir að verða frábær leikmaður og mun hann fá mörg tækifæri á þessu tímabili.

Þessi 19 ára gamli sóknarmaður kom til Liverpool árið 2011 og sýndi skemmtilega takta á síðustu leiktíð eftir að hafa komið á láni frá Derby.

Ibe hefur einnig verið lánsmaður hjá Birmingham, en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool gegn QPR í maí 2013. Alls hefur hann einungis spilað 12 leiki fyrir Liverpool í deildinni en þykir lofa mjög góðu.

„Við megum ekki gleyma því að Jordon er bara 19 ára. Hann braust ungur inn í liðið og fékk einhverja leiki, en við töldum að hann þyrfti að fara á láni, þar sem hann stóð sig mjög vel," sagði Rodgers.

„Þegar hann kom til baka á síðasta tímabili var hann frábær. Ég held að stuðningsmennirnir séu mjög spenntir yfr honum."

„Hann er klárlega strákur sem við viljum gera að frábærum leikmanni, en vi verðum að gefa honum tíma og skapa rétt umhverfi svo hann geti orðið það. Hann bætir sig með hverju ári og hann mun koma mikið við sögu á tímabilinu."


Athugasemdir
banner
banner