Stevan Jovetic hefur gengið í raðir Inter frá Manchester City á lánssamningi til að byrja. Samningurinn er til eins og hálfs árs en svo mun Inter alfarið kaupa hann.
Inter hefur tilkynnt þetta en Jovetic lék á sínum tíma með Fiorentina.
Inter hefur tilkynnt þetta en Jovetic lék á sínum tíma með Fiorentina.
Roberto Mancini, stjóri Inter, fagnar því að klófesta Jovetic og segir hann mikilvæga viðbót við sóknarleikinn.
Jovetic er sóknarmaður frá Svartfjallalandi, 25 ára, og gekk í raðir City 2013 en náði ekki að festa sig í sessi.
Athugasemdir