Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. júlí 2015 09:00
Alexander Freyr Tamimi
Szczesny: Auðveld ákvörðun að fara í Roma
Szczesny spilar með Roma á næstu leiktíð.
Szczesny spilar með Roma á næstu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Wojciech Szczesny segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að ganga til liðs við Roma á eins árs lánssamningi frá Arsenal.

Pólverjinn kláraði félagaskiptin á fimmtudag, en hann hafði fallið enn aftar í goggunarröðinni á Emirates leikvangnum með komu Petr Cech. Á síðasta tímabili hirti David Ospina af honum sætið um áramótin.

„Það var auðveld ákvörðun að ganga til liðs við Roma, þetta er eitt stærsta félag Evrópu," sagði Szcezny.

„Að fá tækifæri til að koma hingað í allavega ár og sýna gæði mín í erfiðri deild og Meistaradeildinni einnig, það er frábær reynsla. Ég held að allir leikmenn yrðu stoltir af því að spila fyrir þetta félag."
Athugasemdir
banner
banner