Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. júlí 2015 15:44
Elvar Geir Magnússon
Veretout og Gestede til Aston Villa (Staðfest)
Jordan Veretout.
Jordan Veretout.
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur staðfest um kaup á franska miðjumanninum Jordan Veretout frá Nantes og sóknarmanninum Rudy Gestede frá Blackburn en hann er frá Benín.

Veretout skrifaði undir fimm ára samning en hann er U21-landsliðsmaður.

„Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára er hann með góða reynslu þrátt fyrir aldur. Hann hefur spilað yfir 140 leiki í Frakklandi og er gríðarlega spennandi ungur leikmaður. Við erum í skýjunum með að fá hann," segir Tim Sherwood, stjóri Villa.

Gestede skrifaði undir fimm ára samning en hann skoraði 22 mörk fyrir Blackburn á síðstat tímabili.

„Ég hef alltaf verið hrifinn af Rudy. Markaskorun hans síðasta tímabil var mögnuð, hann er leikmaður sem kann að skila mörkum," segir Sherwood.
Athugasemdir
banner
banner