Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 31. ágúst 2014 05:55
Grímur Már Þórólfsson
England í dag - Stórleikur á White Hart Lane
Mario Balotelli spilar líklega sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
Mario Balotelli spilar líklega sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir í ensku úrvalsdeildinni í dag. Klukkan 12:30 eru tveir leikir, stórleikur helgarinnar þegar Tottenham tekur á móti Liverpool og Aston Villa - Hull.

Mario Balotelli verður í leikmannahóp Liverpool og verður fróðlegt að sjá hann í sínum fyrsta leik í Liverpool treyjunni. Liverpool tapaði fyrir Manchester City síðasta mánudag á meðan að Tottenham vann 4-0 sigur á QPR og er með fullt hús stiga.

Síðasti leikur dagsins er svo viðureign nýliða Leicester og Arsenal á King Power Stadium. Oliver Giroud verður ekki með Arsenal en hann meiddist illa gegn Everton síðustu helgi. Það verður því fróðlegt að sjá hver verður fremsti maður hjá Arsenal.

Alexis Sanchez var fremstur gegn Besiktas á miðvikudaginn og gæti því verið þar áfram. Þá gætu leikmenn eins og Yaya Sanogo og Joel Campbell fengið tækifærið.

Leikir dagsins:
12:30 Tottenham - Liverpool (Stöð 2 Sport 2)
12:30 Aston Villa - Hull (Stöð 2 Sport 3)
15:00 Leicester - Arsenal (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner