sun 31. ágúst 2014 22:35
Magnús Már Einarsson
Kaupir Wenger framherja á morgun?
Arsene Wenger.
Arsene Wenger.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, útilokar ekki að fá framherja til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.

Olivier Giroud verður frá keppni fram í janúar og því gæti Wenger dregið upp budduna og keypt framherja.

,,Við erum ekki búnir að taka ákvörðun. Þetta snýst um að finna einstaklinginn. Við erum opnir og erum að vinna í þessu en við skulum ekki plata sjálfa okkur," sagði Wenger.

,,Man City tapaði gegn Stoke og þeir voru með framherja. Þetta snýst ekki um að kaupa einn leikmann."

,,Við viljum kaupa leikmann og erum opnir fyrir því. Við gerum okkar besta."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner