Gríska félagið Olympiakos hefur fengið framherjann Kostas Mitroglou aftur í sínar raðir á láni frá Fulham.
Lánssamningurinn gildir þar til næsta sumar.
Fulham pungaði út ellefu milljónum punda fyrir Mitroglou í janúar síðastliðnum.
Þessi 26 ára leikmaður mætti hins vegar í afleitu formi til Englands og hann spilaði einungis þrjá leiki með liðinu.

Mitroglou hafði skorað 23 mörk í 26 leikjum með Olympiakos og gríska landsliðinu á síðasta tímabili áður en hann samdi við Fulham.
Athugasemdir