Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 31. ágúst 2014 19:30
Magnús Már Einarsson
Lucas utan hóps hjá Liverpool en ekki á förum
Mynd: Getty Images
Lucas Leiva hefur ekki verið í leikmannahópi Liverpool í síðustu tveimur leikjum.

Lucas var í byrjunarliðinu gegn Southampton í fyrstu umferð en síðan þá hefur hann verið utan hóps.

Brasilíumaðurinn hefur verið orðaður við önnur félög að undanförnu en Rafael Benitez vill meðal annars fá hann til Napoli.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, reiknar þó ekki með að Lucas fari áður en félagaskiptaglugginn lokar á morgun.

,,Lucas er mjög mikilvægur hluti af hópnum okkar og hann er óheppinn að vera ekki með núna. Ég hef ekki fengið fréttir um að hann sé að fara en við sjáum hvernig næstu dagar fara," sagði Rodgers.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner