,,Við mættum ekki tilbúnir. Það er einföld og stutt skýring," sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson fyrirliði ÍBV eftir 3-0 tap gegn Val í dag.
,,Við vorum einhversstaðar annars staðar í byrjun og eftir það var erfitt að koma til baka. Valsmenn voru líka að spila vel í dag."
,,Við vorum einhversstaðar annars staðar í byrjun og eftir það var erfitt að koma til baka. Valsmenn voru líka að spila vel í dag."
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 ÍBV
Eyjamenn eru með 20 stig í 7. sæti þegar fjórar umferðir eru eftir af deildinni. ,,Við erum ekki að horfa niður, við erum að horfa upp. Það eru fjórir leikir eftir og við þurfum að gefa allt í þetta núna."
Þórarinn Ingi er nú á leið á æfingar með íslenska landsliðinu fyrir leikinn gegn Tyrkjum í næstu viku.
,,Það er virkilega ánægjulegt og heiður að koma inn í þetta. Þetta er ánægjulegt fyrir mig sjálfan," sagði Þórarinn Ingi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir