Valencia ætlar að reyna að fá Alvaro Negredo framherja Manchester City í sínar raðir á láni áður en félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.
Þessi 29 ára gamli leikmaður skoraði 23 mörk í 49 leikjum með Manchester City á síðasta tímabili eftir að hann kom til félagsins frá Sevilla.
Negredo er meiddur í augnablikinu en hann ku hafa áhuga á að fara aftur heim til Spánar.

Negredo er sjálfur sagður vera tilbúinn að taka á sig launalækkun til að lánssamningurinn gangi upp en sólarhringur er til stefnu til að ganga frá honum.
Athugasemdir