Áfram Ísland verður með opinn sölubás (treflar, húfur, derhúfur, bolir, fánar, landsliðstreyjur o.fl) á Laugardalsvelli í dag mánudaginn 31.ágúst frá 15-19 (margs konar tilboð í gangi).
„Við viljum vera sýnileg á vellinum í Amsterdam og ef þú ert á leiðinni til Hollands er tilvalið að kíkja til okkar og dressa sig upp fyrir leikinn. Við verðum einnig með vörur til sölu á DAM torginu í Amsterdam fyrir leik en það er vissara að vera búinn að tryggja sér varning.
Kv, ÁFRAM ÍSLAND," segir í tilkynningu.
Um 3.000 Íslendingar verða í Hollandi á fimmtudag þegar íslenska landsliðið mætir heimamönnum á Amsterdam Arena.
Athugasemdir