Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 31. ágúst 2015 19:47
Ívan Guðjón Baldursson
Blaszczykowski til Fiorentina (Staðfest)
Kuba í baráttunni við Bastian Schweinsteiger fyrir nokkrum árum.
Kuba í baráttunni við Bastian Schweinsteiger fyrir nokkrum árum.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund er búið að staðfesta kaup Fiorentina á pólska kantmanninum Jakub Blaszczykowski.

Blaszczykowski mætti til Flórens fyrr í dag og stóðst læknisskoðun. Blaszczykowski, oftast kallaður Kuba, kemur á eins árs lánssamning fyrir eina milljón evra. Með í lánssamningnum fylgir kaupákvæði sem gefur ítalska félaginu rétt á að kaupa leikmanninn fyrir sex milljónir í viðbót.

Kuba hefur gert 14 mörk í 70 landsleikjum fyrir Pólland og 27 í 197 deildarleikjum fyrir Borussia Dortmund, þar sem hann hefur verið síðustu átta ár.

Kuba verður 30 ára gamall í desember og kemur beint inn í byrjunarlið Fiorentina sem er búið að missa nokkra kantmenn í sumar.
Athugasemdir
banner
banner