Sunderland hefur keypt framherjann Fabio Borini frá Liverpool en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Sunderland borgar átta milljónir punda fyrir Borini en verðið mun hækka í tíu milljónir punda ef hann stendur sig vel hjá félaginu.
Hinn 24 ára gamli Borini krotaði undir fjögurra ára samning hjá Sunderland.

Borini þekkir til hjá Sunderland en hann var í láni hjá liðinu tímabilið 2013/2014.
Borini kom til Liverpool frá Roma árið 2012 en hefur ekki náð að festa sig í sessi. Í sumar hefur hann verið úti í kuldanum og ekki fengið að æfa með aðalliði Liverpool.
Athugasemdir