banner
   mán 31. ágúst 2015 19:38
Ívan Guðjón Baldursson
Jon Walters biður um sölu frá Stoke
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Jonathan Walters, sóknarmaður Stoke, sé búinn að biðja formlega um sölu frá félaginu.

Stoke hafnaði tveimur tilboðum frá Norwich í síðustu viku þar sem nýliðarnir buðu 2 milljónir punda í leikmanninn.

Walters hefur verið í samningsumræðum við Stoke undanfarna mánuði en þær ganga illa og vill Walters fara til Norwich sem er reiðubúið að bjóða lengri samning heldur en Stoke.

Walters verður 32 ára eftir nokkrar vikur og hefur gert 34 mörk í 178 leikjum fyrir Stoke síðustu fimm ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner