banner
   mán 31. ágúst 2015 17:57
Ívan Guðjón Baldursson
Lindegaard til West Brom (Staðfest)
Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion er búið að ganga frá kaupunum á Anders Lindegaard frá Manchester United.

Lindegaard, sem er 31 árs gamall Dani, kemur frítt til félagsins eftir að hafa aðeins spilað 19 úrvalsdeildarleiki fyrir Man Utd frá komu sinni fyrir fimm árum.

„Frá komu minni til Englands hef ég verið hrifinn af því hversu vel West Brom hefur gengið í úrvalsdeildinni," sagði Lindegaard við vefsíðu West Brom.

„Ég átti gott spjall við Tony Pulis og hann sannfærði mig um að þetta væru góð félagsskipti bæði fyrir mig og West Brom.

„Það tók ekki langan tíma að ganga frá samningsmálum eftir þetta samtal og ég er einbeittur að því sem skiptir mestu máli, spila fótbolta."

Athugasemdir
banner
banner
banner