Chievo fékk Lazio í heimsókn og vann óvæntan 4-0 sigur þar sem Riccardo Meggiorini gerði fyrsta mark leiksins og lagði næsta upp fyrir Alberto Paloschi.
Stoðsending Meggiorini í öðru markinu er vægast sagt sturluð þar sem Meggiorini gefur boltann fyrir með viðstöðulausri hælspyrnu.
Stoðsending Meggiorini í öðru markinu er vægast sagt sturluð þar sem Meggiorini gefur boltann fyrir með viðstöðulausri hælspyrnu.
Boltinn ratar beint á kollinn á Paloschi sem getur lítið annað gert en að skora úr algjöru dauðafæri.
Myndband af markinu má sjá hér fyrir neðan og ljóst að það verður erfitt að toppa þessa stoðsendingu á næstunni.
Athugasemdir