Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 31. ágúst 2015 13:30
Elvar Geir Magnússon
Amsterdam
Myndir: Jói Berg, Gylfi og Alfreð fóru í siglingu
Icelandair
Jói, Gylfi og Alfreð léttir á því í siglingunni.
Jói, Gylfi og Alfreð léttir á því í siglingunni.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Íslenski landsliðshópurinn er kominn saman í Hollandi til undirbúnings fyrir stórleikinn á Amsterdam Arena sem verður á fimmtudagskvöld.

Eins og margoft hefur komið fram fer stór tími í landsliðsferðum í hótelafslöppun milli funda og æfinga.

Jóhann Berg Guðmundsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason nýttu frítímann í dag með því að skella sér í létta siglingu í einu af fjölmörgum síkjum Amsterdam.

Ómar Vilhelmsson, ljósmyndari okkar, var að koma úr verslunarferð þegar strákarnir sigldu framhjá honum og að sjálfsögðu smellti hann af nokkrum myndum sem sjá má hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner