Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 31. ágúst 2015 12:27
Magnús Már Einarsson
Ólafur Ingi kallaður í landsliðshópinn
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason, miðjumaður Genclerbirligi, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Hollendingum á fimmtudag.

Ólafur Ingi kemur til Amsterdam frá Tyrklandi í kvöld.

Emil Hallfreðsson fór meiddur af velli snemma leiks með Hellas Verona í gær.

Mikil óvissa er um þátttöku Emils í leiknum á fimmtudag og því hefur Ólafur Ingi verið kallaður inn í hópinn.

Ólafur Ingi spilaði síðast landsleik í vináttuleiknum gegn Eistlandi á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner