mán 31. ágúst 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ricky van Wolfswinkel til Real Betis (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ricky van Wolfswinkel, dýrasti leikmaður í sögu Norwich, er farinn til Real Betis á lánssamning út tímabilið.

Van Wolfswinkel kom til Norwich fyrir um 10 milljónir punda og gerði aðeins eitt mark í 25 deildarleikjum fyrir félagið.

Norwich lánaði sóknarmanninn til Saint-Etienne í Frakklandi og þar gerði hann 5 mörk í 24 leikjum. Áður hafði hann skorað 28 mörk í 55 leikjum fyrir Sporting CP í Portúgal.

Ekkert pláss er fyrir Wolfswinkel í liði Norwich, sérstaklega ekki eftir komu Dieumerci Mbokani fyrr í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner