Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 31. ágúst 2015 17:37
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Man Utd fær Navas og 29 milljónir fyrir David de Gea
Mynd: Getty Images
Guillem Balague, einn virtasti fótboltafréttamaður Spánar og starfsmaður Sky Sports, segir félagsskipti David de Gea til Real Madrid vera staðfest.

De Gea mun kosta Real Madrid 29 milljónir punda auk markvarðarins Keylor Navas.

De Gea á aðeins eitt ár eftir af samningnum við Manchester United og verður meðal dýrustu leikmanna sögunnar sem áttu aðeins eitt ár eftir af samning.

Navas, 28 ára markvörður Real Madrid, kemur til Man Utd og mun berjast við Sergio Romero um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner