Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 31. ágúst 2015 13:41
Magnús Már Einarsson
Tottenham leggur fram tilboð í Witsel
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur lagt fram 13 milljóna punda tilboð í Axel Witsel miðjumann Zenit St. Pétursborg.

AC MIlan vill líka fá Witsel í sínar raðir en einungis á láni.

Witsel kom til Zenit frá Benfica árið 2012 og hefur staðið sig vel í Rússlandi síðan þá.

Hinn 26 ára gamli Witsel hefur skorað sex mörk í 57 leikjum með belgíska landsliðinu á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner