Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 31. október 2014 09:44
Magnús Már Einarsson
Gerrard gæti farið frá Liverpool næsta sumar
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, gæti gengið til liðs við annað félag næsta sumar ef hann fær ekki nýjan samning,.

Hinn 34 ára gamli Gerrard hefur verið hjá Liverpool frá níu ára aldri en hann útilokar ekki að róa á önnur mið þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

,,Ég mun ekki hætta í sumar. Ég mun spila áfram eftir þetta tímabil," sagði Gerrard.

,,Við verðum að bíða og sjá hvort það verði hjá Liverpool eða einhversstaðar annars staðar. Það er ákvörðun Liverpool."

Gerrard hefur verið fyrirliði Liverpool í áraraðir en hann á tæplega 700 leiki að baki með aðalliði félagsins.
Athugasemdir
banner
banner