Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. október 2014 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard: Munuð sjá breytingar á leikstílnum mínum
Gerrard var með mann á sér gegn West Ham og Aston Villa.
Gerrard var með mann á sér gegn West Ham og Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard fór í viðtal við Daily Mail og spjallaði þar um tímabilið þar sem fyrsta fjórðungnum er að ljúka.

Gerrard nefndi leikstílsbreytingu í viðtalinu. Hann segir nokkur lið vera byrjuð að setja einn mann í það hlutverk að dekka sig á miðjunni.

,,Þetta hefur verið öðruvísi tímabil. Nokkur lið eru búin að setja mann til að dekka mig," sagði Gerrard.

,,Til dæmis gegn (Aston) Villa. Þá var (Gabriel) Agbonlahor ekkert að hugsa um boltann eða leikinn, eina sem hann gerði var að elta mig. Það var eins gegn West Ham, en Sam Allardyce hefur reyntar alltaf sett mann á mig.

,,Ég gat ekki haft mikil áhrif á leikinn í þessi tvö skipti og hef átt mörg samtöl við Brendan (Rodgers) um hvernig ég get breytt leikstílnum til að koma í veg fyrir að vera dekkaður.

,,Við teljum okkur hafa leyst vandann svo þið munuð sjá breytingar í leikstílnum mínum í næstu leikjum."

Athugasemdir
banner
banner
banner