fös 31. október 2014 14:20
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari Granada bálreiður - Reif forsíðu Marca
Joaquin Caparros.
Joaquin Caparros.
Mynd: Getty Images
Joaquin Caparros, þjálfari Granada, er allt annað en sáttur við spænska blaðið Marca eins og kom bersýnilega í ljós á fréttamannafundi í dag.

Granada mætir Real Madrid á morgun en Marca er oft kallað málgagn Real Madrid.

Á forsíðu blaðsins er fyrirsögnin sem sögð er tilvísun í Caparros: „Ég vona bara að þeir rúlli ekki yfir okkur."

Caparros mætti með blaðið á fréttamannafundinn og reif það í tætlur enda vill hann meina að orð sín hafi verið gjörsamlega tekin úr samhengi.

„Það er ekki fræðilegt að ég hafi sagt þessi orð. Ég sver það við gröf föður míns að ég mun ekki gefa einum né neinum neitt," sagði Caparros en myndband af uppákomunni má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner