Ciaran Clark lék allan leikinn í vörn Newcastle þegar liðið fékk Brighton í heimsókn í gær.
Niðurstaðan í leiknum var markalaust jafntefli og Clark talaði um að úrslitin hafi verið sanngjörn.
„Þetta var erfiður leikur og við vissum að hann yrði erfiður. Það voru ekki mörg færi í þessum leik og ég tel að úrslitin hafi verið sanngjörn."
„Þetta eru leikirnir sem geta gefið þér mynd af því hvar við munum enda þegar þessu lýkur í vor, við vildum sigur í dag en það tókst ekki. Við tökum engu að síður stigið og förum að setja alla einbeitingu á leikinn gegn Stoke á mánudaginn," sagði Ciaran Clark að lokum.
Newcastle er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en eins og fyrr segir þá mæta þeir Stoke á morgun, mánudag.
Athugasemdir