Jurgen Klopp stýrði Liverpool til sigurs í gær þegar Leicester City heimsótti Anfield.
Salah skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri en Jamie Vardy kom Leicester yfir snemma leiks.
„Það er alltaf virkilega ánægjulegt að vinna eins og við gerðum í dag, á fullkomnum dögum vinnum við leiki og dagurinn í dag var fullkominn."
„Þegar við lentum einu marki undir þá brugðumst við því eins vel og hægt var, þetta var það besta sem ég hef séð í svona stöðu eins og við vorum í."
Klopp gat að sjálfsögðu ekki endað viðtalið án þess að minnast á Salah.
„Mo Salah lék frábærlega í dag, ég gat ekki beðið um meira frá honum," sagði Jurgen Klopp.
Athugasemdir