Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 31. desember 2017 11:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mark Warburton rekinn frá Nottingham Forest
Warburton, til vinstri hefur verið rekinn frá Nottingham Forest
Warburton, til vinstri hefur verið rekinn frá Nottingham Forest
Mynd: Getty Images
Enska Championship liðið Nottingham Forest hefur ákveðið að reka stjóra liðsins, Mark Warburton og íþróttastjóra félagsins, Frank McParland.

Warburton var rekinn í morgun en uppsögnin kemur í kjölfar 1-0 taps gegn Sunderland á heimavelli í gær.

Forest er í 14. sæti deildarinnar og hefur tapað alls 14 leikjum á tímabilinu. Aðeins eitt lið hefur tapað fleiri leikjum í deildinni og er það botnlið Birmingham.

McParland sá um leikmannakaup félagsins í sumar og hefur hann verið talsvert gagnrýndur vegna þeirra en kaupin hafa verið gagnrýnd.

Talið er að McParland hafi yfirgefið félagið á föstudag síðastliðinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner