Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. desember 2017 20:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Neuer byrjaður að ganga án þess að nota hækjur
Neuer hefur verið meiddur frá því í september
Neuer hefur verið meiddur frá því í september
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer, markvörður Bayern Munchen og þýska landsliðsins er allur að koma til eftir erfið meiðsli og er hann byrjaður að ganga um án þess að notast við hækjur.

Er það fyrsta skref hans í átt að endurkomunni en hann ætlar sér að verða klár fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi næsta sumar.

Neuer er fyrirliðið Þýskalands en Þjóðverjar eiga titil að verja á heimsmeistaramótinu.

Neuer fótbrotnaði í september en ætlar sér að standa í markinu í Rússlandi.

„Ég er viss um að ég verði í markinu á HM. Í mínum augum er ekkert sem stendur í mínum vegi til þess að taka þátt á HM," sagði Neuer.
Athugasemdir
banner
banner
banner