Tix.is

Um viðburðinn

Því miður hefur viðburðinum verið aflýst vegna hertra samkomutakmarkana.

Innipúkinn 2021 - 3 daga hátíð í höfuðborginni um verslunarmannahelgina
Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin um verslunarmannahelgina í ár, eins og hefð er fyrir, fyrir utan síðasta ár, þegar hætta þurfti við hátíðina með eins dags fyrirvara vegna covid.

Aðaltónleikadagskráin fer að sjálfsögðu fram innandyra, en að þessu sinni færir hún sig yfir í Gamla bíó, auk þess sem efri hæð Röntgen verður einnig með dagskrá. Á svæðinu verður sannkölluð hátíðarstemning alla helgina enda verður nóg um að vera á götunni fyrir utan staðina sem og inni á stöðunum sjálfum. Boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld, 30. júlí - 1. ágúst.

Listamenn á Innipúkanum 2021:

FÖSTUDAGUR
Birgitta Haukdal & Moses Hightower
Hipsumhaps
Inspector Spacetime
Karítas
krassasig
Reykjavíkurdætur
Teitur Magnússon

LAUGARDAGUR
Aron Can
Ásta
Emmsjé Gauti
GDRN
Good Moon Deer
gugusar
Skoffín

SUNNUDAGUR
Bjartar sveiflur
BSÍ
Bríet
Eyþór Ingi
Floni
Mammút
sideproject


Armband á hátíðina gildir alla helgina bæði í Gamla bíó og á efri hæð Röntgen og þau má nálgast á svæðinu frá og með föstudeginum. Einnig er hægt að kaupa miða inn á stök kvöld en þeir miðar fara í sölu fljótlega.

Vinsamlegast athugið að 20 ára aldurstakmark er á hátíðina.