Námið
Rannsóknir
HR
Neon
Íþróttafræðideild

Diplomanám í styrk-
og þrekþjálfun

Námstími
1 ár
Einingar
60 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt

Hvað læri ég

Störfum og verkefnum tengdum styrk- og þrekþjálfun hefur fjölgað mikið að undanförnu samhliða aukinni vitundarvakningu hjá íþróttafélögum sem og almenningi um mikilvægi hennar. Námið er hagnýtt fyrir alla þá sem vilja læra að meta líkamlegt ástand fólks, gera viðeigandi áætlun og fylgja eftir með viðurkenndum þjálfunaraðferðum. Má þar nefna sjúkraþjálfara, íþróttafræðinga, íþróttakennara og þá sem hafa reynslu af þjálfun.

Að námi loknu eiga nemendur að vera færir um að geta tekið að sér styrk- og þrekþjálfun ólíkra hópa í þjóðfélaginu á faglegan, öruggan og árangursríkan hátt.

WebLoop _ Hlaupa Mælingar

Námið veitir sérhæfingu á sviði styrk- og þrekþjálfunar og er bæði bóklegt og verklegt í bland. Meginviðfangsefni námsins er þjálfun styrks og þreks hjá íþróttafólki þvert á íþróttagreinar sem og almenningi. 

Fræðilegt og verklegt nám

Diplómanámið er eins árs, 60 ECTS eininga nám (54 ECTS einingar metnar til BSc). Kennslan samanstendur af fyrirlestrum, vinnustofum, verkefnavinnu og rannsóknarstofuvinnu ásamt verklegri kennslu. Með fjölbreyttum kennsluaðferðum fá nemendur jafnframt góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu.

Lifandi umræður

Íþróttafræðideild heldur ótal málþing og opna fyrirlestra á hverri önn. Oft eru viðburðirnir í samráði við íþróttasambönd, íþróttafélög eða önnur svið innan HR eins og til dæmis sálfræðisvið. Nemendur njóta því fjölmargra tækifæra til að hlýða á færustu sérfræðinga og þjálfara hverju sinni.

Íþróttafræðideild HR heldur ótal málþing og opna fyrirlestra á hverri önn. Oft eru viðburðirnir í samráði við íþróttasambönd, íþróttafélög eða önnur svið innan HR eins og til dæmis sálfræðisvið. Nemendur njóta því fjölmargra tækifæra til að hlýða á færustu sérfræðinga og þjálfara hverju sinni.
Nemendur njóta fjölmargra tækifæra til að hlýða á færustu sérfræðinga og þjálfara hverju sinni.

Hvernig læri ég?

Námið er verkefnatengt

Nemendur öðlast traustan, fræðilegan grunn en eru líka virkjaðir til þátttöku í náminu eins mikið og kostur er. Í náminu er beitt fjölbreyttum kennsluaðferðum.

  • Þau námskeið sem eru hluti af BSc námi eru í fjarnámi en nemendum býðst um leið að mæta á staðinn
  • Bóklegir kúrsar þar sem kennsla byggir á fyrirlestrum
  • Ný námskeið verða fjarnámskeið með upptökum frá kennara og einni staðarlotu á önn þar sem farið er yfir verklega þætti

Að námi loknu

Ótal möguleikar

Nemendur eiga að námi loknu að vera færir um að geta tekið að sér styrk- og þrekþjálfun ólíkra hópa í þjóðfélaginu á faglegan, öruggan og árangursríkan hátt.

Áframhaldandi nám

Nemendur sem ljúka diplómanámi í styrk- og þrekþjálfun geta sótt um í íþróttafræði í HR og fengið 54 af 60 ECTS einingum metnar inn í námið.

Skipulag náms

Kennslufyrirkomulag og mat

Þau námskeið sem eru hluti af BSc námi eru kennd á staðnum en einnig verður í boði fyrir nemendur í diplómanámi að fylgjast með í gegnum streymi eða horfa á upptökur frá kennslustundum.

Önnur námskeið verða fjarnámskeið þar sem nemendur fá upptökur frá kennara. Einnig verða staðarlotur þar sem verður farið yfir verklega þætti. Námið er kennt á 12 + 3 vikna tímabilum í tvær annir, haust og vor.

  • Staðlota haustið 2023 verður í vikunni 2.- 6. október. Gera má ráð fyrir viðveru alla daga þessa viku. Ekki verður staðlota í þriggja vikna námskeiði.
  • Staðlota vorið 2024 verður í vikunni 26. febrúar - 1. mars. Gera má ráð fyrir viðveru alla daga þessa viku. Ekki verður staðlota í þriggja vikna námskeiði.
  • BSc námskeið (íþróttafræðingar og sjúkraþjálfarar geta fengið þessi líffæra-, lífeðlis- og hreyfingafræði metna)
  • Skipulag þjálfunar fæst ekki metið til BSc náms
  • Námskeiðin hraða- og snerpuþjálfun, skipulag þjálfunar, styrk- og aflþjálfun og árangursrík styrk- og þrekþjálfun eru kennd á ensku
Lærdómsviðmið

Lærdómsviðmið fyrir diplómanám í styrkþjálfun tilgreina að handhafar prófgráðunnar geti beitt aðferðum og verklagi þekkingar innan fræðasviðsins eins og hér greinir:

  • Þekki og geti gert grein fyrir grundvallarhugtökum styrkþjálfunar.
  • Geti metið og sannreynt nýja þekkingu sem mun koma fram innan fagsviðsins.
  • Þekki og geti gert grein fyrir vinnukröfum mismunandi íþrótta og hreyfinga.
  • Skilji og þekki mikilvægi styrkþjálfunar fyrir víðan hóp einstaklinga og liða.
  • Þekki og geti gert grein fyrir öryggisviðmiðum varðandi styrk- og þrekþjálfun og hvaða hættur geta leynst við þjálfun hjá ólíkum iðkendum.
Haust
Líffærafræði
E-103-ANAT / 6 ECTS
Árangursrík styrk- og þrekþjálfun
E-105-ECSC / 6 ECTS
Styrk- og aflþjálfun
E-107-DVSP / 6 ECTS
Styrk- og þrekþjálfun fyrir sértæka hópa
E-107-STES / 6 ECTS
Miðlun og meðhöndlun gagna
E-109-MIME / 6 ECTS
Vor
Lífeðlisfræði
E-201-PHYS / 6 ECTS
Hreyfingafræði
E-213-KINE / 6 ECTS
Hraða- og snerpuþjálfun
E-206-DESA / 6 ECTS
Þol- og úthaldsþjálfun
E-207-ENDU / 6 ECTS
Skipulag þjálfunar
E-209-ORGT / 6 ECTS
Námstími
1 ár
Einingar
60 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt

Aðstaða fyrir íþróttafræðinema

Þjónusta og góður aðbúnaður

Kennsla fer fram á netinu, í háskólabyggingu HR og á líkamsræktarstöð. Þá hefur íþróttafræðideild til umráða glæsilega aðstöðu til kennslu og rannsókna. Þar er m.a. að finna:

  • Hlaupabretti, róðrarvél, Wingate hjól og Atom X Wattbike til að meta úthald
  • Tæki til að mæla hámarkssúrefnisupptöku og mjólkursýruframleiðslu
  • Lyftingarekka, stangir, lóðaplötur, handlóð, ketilbjöllur, TRX bönd, teygjur og æfingabolta
  • Tanita mælitæki til að mæla líkamssamsetningu, fitufrían massa, hlutfall fitumassa og grunn orkuþörf
  • Ýmiskonar mælitæki til að nota á vettvangi, s.s tímahlið, stökkmottur, gripstyrktarmæli, FMS hreyfifærni próf
  • Átaksmæli frá Kinvent
Kennslustofur og lesherbergi

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.  

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Kennarar

Vísindamenn og sérfræðingar

Nemendur í íþróttafræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.

Inntökuskilyrði

Íþróttafræðingar, sjúkraþjálfarar og umsækjendur með reynslu af þjálfun ganga fyrir við inntöku. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og uppfylla eitthvað af eftirtöldu:

  • Háskólapróf
  • Stúdentspróf
  • Lágmark 100 framhaldskólaeiningar auk reynslu af þjálfun

Umsóknarfrestur

Tekið er við umsóknum fyrir haustönn 5. febrúar - 5. júní. Aðeins er tekið inn í diplómanám í styrktar- og þrekþjálfun á haustin.

Lengd náms

  • 60 ECTS – 2 annir

Hægt er að nýta þær einingar sem diplómanámið samanstendur af í fullt grunnnám í íþróttafræði. Þar eru 54 ECTS einingar diplómanámsins metnar. Metið er hvort umsækjendur þurfi að taka námskeiðið vinnulag í háskólanámi.

Mat á umsóknum

Við mat á umsóknum er tekið tillit til einkunna á stúdentsprófi eða lokaprófi úr Háskólagrunni HR, frekari menntunar, starfsreynslu og þátttöku í félagsstörfum. Umsækjendur eru því hvattir til að gera grein fyrir öllu því sem þeir telja að geta orðið umsókn sinni til framdráttar.

Fylgigögn með umsókn

Umsækjendur fylla út rafræna umsókn og fylgigögnum er skilað inn í sama umsóknarkerfið. Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

  • Staðfest afrit af stúdentsprófskírteini
  • Staðfestar einkunnir frá öðrum skólum ef áfangar eru metnir
  • Upplýsingar um aðra menntun
  • Ef umsækjandi hefur ekki lokið stúdentsprófi en telur sig vera með sambærilegt nám að baki er nauðsynlegt að skila inn yfirliti af námsárangri frá viðkomandi skóla
  • Staðfesting frá vinnuveitanda á þjálfun og kennslu (ef við á)
  • Staðfesting á íþrótta- og æskulýðsþátttöku frá þjálfara (ef við á) 
Af hverju nám í styrk- og þrekþjálfun?
  • Víðtæk þekking á sviði styrktar- og þrekþjálfunar
  • Tækifæri til að sníða verkefni að sínu áhugasviði
  • Framúrskarandi aðstaða
  • Gott aðgengi að kennurum
Fara efst