Golfferðir - Heimsferðir
Golfferðir
2023

Stórkostleg 8 nátta golfferð til Agadir og Taghazout í Morokkó.  Fyrstu 4 næturnar er gist á Tikida Golf Palace í Agadir og seinni 4 næturnar er gist i Taghazout.

Spilaðir eru 4 hringir á Golf du Soleil vellinum, 36 holu völlur staðsettur rétt fyrir utan Agadir. Spilaðir eru mismunadi lykkjur og eru vellirnir skemmtilega fjölbreyttir.   Gisting í 4 nætur á Tikida Golf Palace, glæsilegur 5 stjörnu hóteli staðsett við golfvöllinn.  Gisting er í junior svítu. Á hótelinu er mjög góð aðstaða, a la carté veistingstaður, bar, heilsurækt og góður garður með sundlaug.  Í heilsuræktinni er einnig innisundlaug.  Mjög góð aðstaða er við golfvöllinn, gott klúbbhús sem selur veitingar og lítil verslun.
Miðbær Agadir er í næsta nágrenni og örstutt að skreppa þangað t.d. á markaðinn eða á veitingastaði..

Seinni hluta ferðarinnar er haldið út að strönd í Taghazout og spilaðir 3 hringir á Taghazout golfvellinum,   Skemmtilegur völlur sem stendur hátt uppi með stórkostlegu útsýni út á hafið.  Völlurinn var opnaður 2014 og er skemmtilega opinn en fjölbreyttur.  Alls eru þrír 9 holu vellir og spilaðar eru mismunandi lykkjur. Gott klúbbhús við völlinn þar sem hægt er að kaupa mat og drykki.

Akstur frá hótelinu á golfvöllinn í Taghazout er á vegum golfklúbbsins.

Taghazout bærinn er skemmtilegt ósnert fiskimannaþorp þar sem mannlífið er afar fjölbreytt og afslappað.  Meðfram strandgötunni í bænum sjálfum  er fjöldi veitingahúsa.  Það tekur u.þ.b 8-10 mínútur með leigubíl frá hótelinu inní þorpið.  Heimamenn bjóða einnig uppá ferð með úlföldum á ströndinni til og frá bænum.