Pingdom Check

Hvers vegna að ganga í Icelandair Saga Club?

Icelandair Saga Club er fríðindakerfi Icelandair og með því að gerast félagi færðu enn meira út úr ferðalaginu!

Félagar í Saga Club:

  • safna Vildarpunktum hjá Icelandair og samstarfsaðilum um allan heim
  • geta notað Vildarpunkta til að kaupa flug og fjölmargt annað
  • sértilboð sem eru aðeins í boði fyrir félaga
  • njóta sérstakra fríðinda ef þeir fljúga reglulega með Icelandair

Allir sem eru 12 ára og eldri geta skráð sig í Saga Club.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Um Vildarpunkta

Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaupa vöru og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum okkar um allan heim.

Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíla, gjafakort og margt fleira.

Um Fríðindastig

Alltaf þegar félagar í Saga Club safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.

Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og svo Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.