Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 28. apríl 2008 11:22
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Lampard líklega með Chelsea gegn Liverpool á miðvikudag
Mynd: Getty Images
Frank Lampard miðjumaður Chelsea mun væntanlega leika með liðinu gegn Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöldið.

Lampard missti af leik Chelsea og Manchester United í fyrradag en Pat, móðir hans, lést úr lungnasjúkdómi í síðustu viku.

Talið er að Lampard hafi æft í gær og búist er við að hann komi að nýju til móts við liðsfélaga sína í Chelsea í dag.

Leikurinn á miðvikudag er síðari viðureign Chelsea og Liverpool en fyrri leikurinn á Anfield í síðustu viku endaði 1-1 þar sem John Arne Riise skoraði sjálfsmark í lokin.
Athugasemdir
banner
banner