Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 09. desember 2009 08:00
Magnús Már Einarsson
Hvar eru þeir núna? Erlendir leikmenn sem léku á Íslandi
Mark Schulte lék með Eyjamönnum 2004 og 2006.
Mark Schulte lék með Eyjamönnum 2004 og 2006.
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Petr Podzemsky lék með KR og Breiðablik á sínum tíma.
Petr Podzemsky lék með KR og Breiðablik á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Bo Henriksen fagnar marki með Fram.
Bo Henriksen fagnar marki með Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Branislav Milisevic í leik með Keflavík árið 2007.
Branislav Milisevic í leik með Keflavík árið 2007.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Margir erlendir leikmenn hafa leikið á Íslandi í gegnum tíðina og Fótbolti.net hefur tekið saman yfir lista hvar sumir af þessum leikmönnum eru niður komnir í dag.

Hér að neðan má sjá fyrri hlutann af þessum lista en sá síðari birtist í næstu viku. Ef að einhverjar upplýsingar eru vitlausar eða ef lesendur hafa upplýsingar um leikmenn sem vantar á listann þá má endilega senda skilaboð á [email protected].


David Winnie (KR 1998-2001)
David Winnie lék með KR frá 1998-2000 og var valinn leikmaður ársins árið 1998. Hann þjálfaði KR árið 2001 og tók síðan við Dumbarton í Skotlandi árið 2002. Hann hætti þar árið 2003 en í dag starfar Winnie sem íþróttalögfræðingur á Englandi.

Jens Martin Knudsen (Leiftur 1998-2000)
Færeyski markvörðurinn Jens Martin Knudsen lék með Leiftri frá 1998-2000. Hann fór síðan aftur til Færeyja þar sem að hann var spilandi þjálfari hjá NSI Runavík áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2007.

Che Bunce (Breiðablik 1997-2001)
Ný-Sjálenski varnarmaðurinn Che Bunce lék með Breiðablik frá 1997-2001 en hann kom reyndar ekki til liðsins sumarið 2000. Undanfarin ár hefur Bunce komið víða við en hann var meðal annars á mála hjá Coventry á Englandi og síðan Randers í Danmörku. Í sumar tók Bunce síðan við þjálfun Waikato United í heimalandinu en hann þjálfar einnig liðið.

Robbie Russell (Breiðablik 2001)
Hægri bakvörðurinn Robert Russell lék með Sogndal og Rosenborg í Noregi eftir dvöl sína á Íslandi. Eftir að hafa leikið með Viborg í Danmörku fór hann síðan í MLS deildina í Bandaríkjunum þar sem hann leikur með Real Salt Lake. Hann skoraði meðal annars sigurmarkið í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik deildarinnar gegn LA Galaxy á dögunum.

Sören Hermansen (Þróttur 2003-2004)
Þessi danski framherji skoraði grimmt fyrir Þróttara sumarið 2003 og 2004. Hann fór í kjölfarið heim til Danmerkur og lagði skóna á hilluna árið 2005. Sören var aðstoðarþjálfari hjá Vanlose IF áður en hann tók við 2.deildarliðinu Skovlunde IF. Í byrjun október á þessu ári fékk Sören síðan að taka pokann sinn hjá Skovlunde eftir lélegt gengi liðsins.

Errol Ederson McFarlane (Fylkir 2001/Breiðablik 2005)
Errol Ederson McFarlane er framherji frá Trinidad og Tobago en hann lék með Fylki sumarið 2001. Í kjölfarið fór hann til Líbanon þar sem að hann sló í gegn og varð meðal annars meistari með Al-Nejmeh. McFarlene kom aftur til Íslands árið 2005 þegar hann kom til Breiðabliks en hann lék einungis einn leik og stoppaði stutt við. Hann fór aftur til Líbanon og síðan til heimalandsins áður en þessi 32 ára gamli leikmaður samdi við Rochester Rhinos í Bandaríkjunum. Rochester leikur í ULS deildinni en í sömu deild er Vancouver Whitecaps sem Teitur Þórðarson þjálfar.

Moussa Dagnogo (KR 2001)
Dagnogo átti ekki góðu gengi að fagna með KR árið 2001 en hann var látinn fara um mitt sumar. Þessi franski framherji lék með Red Star 93 í heimalandinu áður en hann hélt til Bandaríkjana þar sem hann lék með Indiana Blast og Cincinnati Kings. Núna er þessi 37 ára gamli leikmaður síðan á mála hjá Indianapolis Braves.

Dean Holden (Valur 2001)
Dean Holden lék nokkra leiki með Val árið 2001 en hann var þá í láni hjá félaginu frá Bolton. Holden lék með Oldham í fjögur ár og síðan Peterborough áður en hann fór til Falkirk árið 2007. Síðastliðið sumar samdi þessi þrítugi leikmaður síðan við Shrewsbury Town þar sem hann leikur núna.

Valdas Trakys (FH 2002)
Valdas Trakys er litháenskur framherji sem lék með FH 2002 og 2003. Síðan þá hefur þessi þrítugi leikmaður komið ansi víða við. Hann lék með SpVgg Greuther Furth og VFL Osnabruck í Þýskalandi áður en hann fór til Rússlands þar sem hann lék með Kuban Krasnodar og FC Oryol. Trakys lék með FK Atlantas í heimalandinu áður en hann fór til Inter Baku í Azerbaijan tímabilið 2007/2008. Þessi víðförli leikmaður leikur síðan núna með FK Ekranas í heimalandinu þar sem hann hefur skorað grimmt.

Mark Schulte (ÍBV 2004 og 2006)
Bandaríski varnarmaðurinn Mark Schulte lék með ÍBV 2004 og 2006. Hann fór í millitíðinni til Úrúgvæ en undanfarin ár hefur hann leikið í heimalandi sínu. Núna leikur Schulte með Carolina RailHawks í USL deildinni í Bandaríkjunum.

Petr Podzemský (KR 2004 – Breiðablik 2005-2006)
Eftir þrjú ár á Íslandi fór hinn tékkneski Petr Podzemský til heimalandsins þar sem að hann lék með Kraluv Dvur í þriðja deildinni. Í fyrra lagði þessi 35 ára gamli leikmaður síðan skóna á hilluna en í dag er hann þjálfari í Tékklandi.

Fróði Benjaminsen (Fram 2004)
Eftir að hafa spilað með Fram í eitt ár þá fór Fróði til B36 í heimalandi sínu Færeyjum. Síðastliðiinn vetur samdi Fróði síðan við HB þar sem hann varð færeyskur meistari í sumar en hann var einnig valinn besti leikmaður tímabilsins. Fróði hefur einnig leikið með landsliði Færeyja undanfarin ár.

Brian O’Callaghan (Keflavík 2004)
Þessi írski varnarmaður stoppaði stutt við hjá Keflavík árið 2004. Hann fór síðan til Notts County þar sem að hann lék undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. O’Callaghan fór síðar til Halifax Town í ensku utandeildinni en núna leikur hann með Limerick FC í heimalandi sínu.

Robert Niestroj (Grindavík 2005)
Þýski miðjumaðurinn Robert Niestroj lék með Grindavík árið 2005 en fór síðan til Preussen Munster í Þýskalandi. Tímabilið 2006/2007 lék Niestroj með gríska félaginu Panserriakos en núna leikur hann með SV Straelen í þýsku 4.deildinni.

Bo Henriksen (Fram og Valur 2005 – ÍBV 2006)
Danski framherjinn Bo Henriksen afrekaði það að leika með þremur íslenskum félögum á aðeins tveimur tímabilum. Þessi síðhærði framherji fór síðan til Brönshoj í heimalandi sínu þar sem að hann er núna þjálfari en liðið leikur í 2.deild. Bo, sem er 34 ára, lék einnig með Brönshoj til að byrja með hann einbeitir sér núna að þjálfuninni.

Branislav Milisevic (Keflavík 2005-2007)
Branislav lék með Keflavík í þrjú ár áður en hann samdi við Start í Noregi. Þar hefur hann fest sig í sessi og leikið 51 leik með Start í norsku úrvalsdeildinni og bikarnum undanfarin tvö ár.
Slapp
banner
banner