Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á morgun. Líkt og á síðasta tímabili mun Fótbolti.net fá valinkunna einstaklinga til að spá í spilin fyrir hverja umferð.
Guðmundur Hilmarsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, var efstur í tippkeppninni í fyrra og hann ríður því á vaðið í tippleiknum í ár en hér að neðan má sjá spá hans fyrir helgina.
Guðmundur Hilmarsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, var efstur í tippkeppninni í fyrra og hann ríður því á vaðið í tippleiknum í ár en hér að neðan má sjá spá hans fyrir helgina.
Arsenal 3 - 1 Sunderland 14:00 á morgun
Þó það kunni að hljóma hálf furðulega þá held ég að það sé ákveðinn léttir í leikmannahópi Arsenal eftir að mál Van Persie komust á hreint. Nú þurfa aðrir menn í liðinu að stíga upp og Lundúnaliðið vinnur öruggan sigur. Arsenal ætlar ekki byrja tímabilið með sama hætti. Smá bros mun færast yfir grátbólgin andlit stuðningsmanna Arsenal.
Fulham 1 - 1 Norwich 14:00 á morgun
Það verður stál í stál á hinum stórglæsilega Craven Cottage. Liðin skilja jöfn, 1:1. Fulham-liðið er að missa Dempsey og sóknarleikur liðsins líður fyrir það. Norwich kom á allra liða mest á óvart í fyrra en í ár verður annað uppi á teningnum. Kanarífuglarnir hans Össurrar Skarphéðinsson verða í basli í vetur og það kæmi mér ekki á óvart ef þeir féllu.
QPR 2 - 1 Swansea 14:00 á morgun
Mark Hughes, stjóri QPR, var einn af mínum uppáhaldsmönnum og ég held að hann nái að stappa stálinu í sína menn. Swansea-liðið er hvorki fugl né fiskur án Gylfa og tímabilið gæti reynst erfitt fyrir Michael Laudrup og lærisveina hans.
Reading 0 - 0 Stoke 14:00 á morgun
Á ekki von á neinni flugeldasýningu á Madeskji Stadium. Stoke pakkar í vörn og nær að hanga á núllinu í bragðdaufum leik.
WBA 1 - 2 Liverpool14:00 á morgun
Liverpool hefur oft lent í basli á The Hawthorns en ég hef trú á Brendan Rodgers og held Liverpool hefji tímabilið með sigri. Luis Suárez skorar bæði mörk Liverpool, sem hefur alla burði til að ná sjötta sætinu í deildinni í ár.
West Ham 1 - 1 Aston Villa 14:00 á morgun
Þarna mætast tvö lið sem verða í baráttu í neðri hluta deildarinnar. Í hörkuleik verður jafntefli niðurstaðan þar sem Agbonlahor jafnar metin fyrir Villa á ögurstundu.
Newcastle 2 - 3 Tottenham 16:30 á morgun
Sé fyrir mér magnaðan leik tveggja góðra liða á St.James Park. Augu okkar Íslendinga verða á Gylfa Þór og hann mun ekki valda vonbrigðum. Töframaðurinn úr Hafnarfirði smellir inn einu marki og það kæmi mér ekki á óvart ef það yrði sigurmarkið. Gylfi mun slá í gegn með Spurs í vetur.
Wigan 0 - 3 Chelsea 12:30 á sunnudag
Chelsea varð að sætta sig við jafntefli á DW vellinum í fyrra en Evrópumeistararnir verða í góðum gír í þessum leik og vinna öruggan sigur. Torres ætlar sér stóra hluti á tímabilinu og hann byrjar vel með því að skora tvö mörk.
Manchester City 5 - 0 Southampton 15:00 á sunnudag
Með fullri virðingu fyrir Southampton þá held ég að þetta verði leikur kattarins að músinni. Englandsmeistararnir gefa tóninn með flottum leik og Agüerro skorar fyrstu þrennu tímabilsins.
Everton 0 - 2 Manchester United 19:00 á mánudag
Leikmenn United eru ekki búnir að gleyma 4:4 leiknum gegn Everton á Old Trafford í apríl. Með þeim leik klúðraði liðið titlinum. Van Persie leikur að óbreyttu sinn fyrsta leik og hann og Rooney sýna hvað koma skal í vetur. Þeir skora sitt hvort markið og gera mikinn usla í vörn Everton manna.





