Aron Kristjánsson, landsliðþjálfari í handbolta, fékk einungis tvo rétta þegar hann tippaði á leiki helgarinnar í enska boltanum fyrir viku.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH og íslenska landsliðsins, fær tækifæri til að bæta árangur Arons að þessu sinni. Gunnleifur tippar á þá níu leiki sem eru í ensku úrvalsdeildinni um helgina auk þess sem hann fékk að velja sér einn leik í Championship deildinni.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH og íslenska landsliðsins, fær tækifæri til að bæta árangur Arons að þessu sinni. Gunnleifur tippar á þá níu leiki sem eru í ensku úrvalsdeildinni um helgina auk þess sem hann fékk að velja sér einn leik í Championship deildinni.
Gunnleifur er mikill stuðningsmaður Manchester City og hann býst við að félagið nái að verja enska meistaratitilinn.
,,Ég er það bjartsýnn að ég segi að Manchester City eigi núna eftir að vinna 50 ár í röð," sagði Gunnleifur við Fótbolta.net í dag.
West Ham 0 - 0 Fulham (11:45 í dag)
Þetta er steindautt 0-0 jafntefli, West Ham ætlar að múra í götin sem voru í síðasta leik. Andy Carroll skorar ekkert frekar en fyrri daginn.
Swansea 1 - 1 Sunderland (14:00 í dag)
Adam Johnson kemur Sunderland yfir og síðan skorar einhver gamall United maður sjálfsmark.
Tottenham 4 - 0 Norwich (14:00 í dag)
Borðleggjandi 4-0 sigur Spurs. Gylfi skorar tvö og leggur upp tvö.
WBA 2 -0 Everton (14:00 í dag)
West Brom heldur áfram góðu gengi sínu ásamt því að slökkva í Everton með 2-0 sigri þar sem Lukaku heldur áfram að valda usla í vörnum andstæðinganna.
Wigan 1 - 0 Stoke (14:00 í dag)
Martraðarleikur helgarinnar. Ég ætla að segja að Wigan vinni 1-0.
Manchester City 7 - 0 QPR (16:30 í dag)
Leikmenn Manchester City eru vel hvíldir eftir að hafa labbað á Anfield og tekið stig þar. 7-0 verða lokatölur þar sem Carlos Tevez skorar þrennu.
Liverpool 0 - 0 Arsenal (12:30 á morgun)
Boring, boring Arsenal. Þriðji markalausi leikurinn í röð hjá þeim.
Newcastle 3 - 1 Aston Villa (15:00 á morgun)
Aston Villa endar í neðsta sæti deildarinnar í lok tímabils og Newcastle vinnur þennan leik örugglega.
Southampton 2 - 0 Manchester United (15:00 á morgun)
Southampton skorar á 19. mínútu og aftur á 93. mínútu eins og FH í fyrradag.
Ipswich 1 - 0 Huddersfield (14:00 í dag)
Þetta er tricky leikur fyrir vin minn Gunnar á Völlum. Eftir afhroð gegn Blackpool held ég að Ipswich komi sterkir til baka og vinni 1-0.
Fyrri spámenn:
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)




