Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 14. september 2012 13:30
Magnús Már Einarsson
Hannes Þór Halldórs spáir í leiki helgarinnar í enska boltanum
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH, fékk þrjá rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar á Englandi fyrir tveimur vikum.

Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, fær tækifæri til að toppa árangur Gunnleifs að þessu sinni. Hannes stóð sig vel með íslenska landsliðinu gegn Noregi og Kýpur en hér að neðan má sjá spá hans fyrir enska boltann um helgina.

Norwich 1 -0 West Ham (11:45 á morgun)
Ég held að John Ruddy kollegi minn eigi eftir að eiga góðan dag og halda sínum mönnum á floti í 1-0 sigri.

Fulham 3 - 0 WBA (14:00 á morgun)
Þarna held ég að góðvinur minn Snorri Baron eigi eftir að landa þremur öruggum stigum. Fulham tapar ekki stigum á móti WBA á heimavelli.

Arsenal 3 - 1 Southampton
Ég veit ekki hvað Southampton getur en þetta er öruggur 1.

Aston Villa 1 - 1 Swansea (14:00 á morgun)
Ég hef alltaf trú á því að Swansea geri eitthvað og þeir eiga eftir að klóra í stig á útivelli.

Manchester United 1 - 1 Wigan (14:00 á morgun)
Mínir menn í Wigan taka óvænt stig á útvelli þarna.

QPR 0 - 2 Chelsea (14:00 á morgun)
Dramatíkin í kringum handaböndin á ekki eftir að hafa áhrif á leikinn. Chelsea vinnur 2-0 og Torres skorar.

Stoke 1 - 0 Manchester City (14:00 á morgun)
Þetta er 1-0 fyrir Stoke. Þetta verður umferð óvæntra úrslita.

Sunderland 0 - 2 Liverpool (16:30 á morgun)
Þarna hrista mínir menn af sér slyðruorðið og vinna sterkan sigur á útivelli. Joe Allen og Luis Suarez skora og Reina verður í feiknaformi í markinu.

Reading 2 - 1 Tottenham (15:00 á sunnudag)
Reading vinnur þetta því miður en okkar maður Gylfi skorar á móti gömlu félögunum.

Everton 2 - 1 Newcastle (19:00 á mánudag)
Þetta er ekta 1, Everton tekur þetta á heimavelli.

Fyrri spámenn:
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Slapp
banner
banner