Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 21. september 2012 12:00
Magnús Már Einarsson
Logi Bergmann spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Logi Bergmann Eiðsson.
Logi Bergmann Eiðsson.
Mynd: Stöð 2
Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður, fékk tvo rétta þegar hann spáði á leiki helgarinnar í enska boltanum um síðustu helgi.

Logi Bergmann Eiðsson spáir í leikina að þessu sinni en hann síður spenntur eftir að sjá sína menn í Manchester United mæta Liverpool á sunnudag.

,,Þetta eru skemmtilegustu leikirnir og ennþá skemmtilegri á Anfield. Ég hef þrisvar farið á Anfield að sjá United spila við Liverpool og það hefur alltaf verið jafn gaman, saman hvernig hefur farið af því að það er svo mikið undir," segir Logi en hér að neðan má sjá spá hans fyrir helgina.


Swansea 2 - 1 Everton (11:45 á morgun)
Þetta eru tvö lið sem byrjuðu hvað best en eru bæði búin að skíta aðeins upp á bak upp á síðkastið. Ég held að heimavöllurinn dugi fyrir Swansea.

Chelsea 2 - 0 Stoke (14:00 á morgun)
Stoke getur ekkert nema á heimavelli og ég held að Chelsea vinni þetta frekar örugglega.

Southampton 1 - 0 Aston Villa (14:00 á morgun)
Ég er ekki almennilega að átta mig á Southampton, þeir hafa komist yfir á móti báðum Manchester liðunum en ekki fengið neitt og eru einhvernegin alveg glataðir. Aston Villa er það leiðinlegasta í fótbolta svo ég held að Southampton hafi þetta.

WBA 1 - 1 Reading (14:00 á morgun)
Þetta er bara eitthvað, hverjum er ekki sama.

West Ham 1 - 1 Sunderland (14:00 á morgun)
Andy Carroll fellur vel inn í þetta West Ham lið en ég býst ekki við miklu þegar hann er ekki með.

Wigan 1 - 2 Fulham (14:00 á morgun)
Ég held að Berbatov sé að fara á mikið flug með Fulham. Hann skorar í þessum leik og Fulham vinnur 2-1.

Liverpool 1 - 2 Manchester United (12:30 á sunnudag)
Liverpool hefur aldrei verið jafnmikið upp við vegg, með nýjan stjóra og geta ekki rassgat. Það skiptir engu máli á móti United, þeir verða dýrvitlausir. Ég ætla að spá því að Vidic klári þennan leik en það verður eins tæpt og það getur verið. United klúðrar líka vítaspyrnu í leiknum eins og vanalega.

Newcastle 2 - 0 Norwich (14:00 á sunnudag)
Ef að Demba Ba er til friðs þá er þetta í lagi.

Tottenham 3 - 0 QPR (15:00 á sunnudag)
Þetta QPR lið verður aldrei neitt á meðan þetta er að fara að smella hjá Tottenham.

Manchester City 1 - 1 Arsenal (15:00 á sunnudag)
City liðið hefur komið pínu á óvart, ég átti von á þeim aðeins sterkari með allan þennan mannskap. Arsenal hefur líka komið á óvart og ég held að þetta verði jafntefli 1-1 þar sem Lukas Podolski jafnar seint í leiknum.

Fyrri spámenn:
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson 2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Slapp
banner