Logi Bergmann með 8 rétta síðast
Logi Bergmann Eiðsson setti nýtt met í tippleik Fótbolta.net í enska boltanum þegar hann fékk 8 rétta um síðustu helgi. Þar af var Logi með fjögur hárrétt úrslit.
Alfreð Finnbogason, framherji Heerenveen, tippar á leiki helgarinnar að þessu sinni en spennandi verður að sjá hvort hann verði í jafnmiklu stuði og þegar hann skoraði fjögur mörk í hollensku úrvalsdeildinni um helgina.
Alfreð Finnbogason, framherji Heerenveen, tippar á leiki helgarinnar að þessu sinni en spennandi verður að sjá hvort hann verði í jafnmiklu stuði og þegar hann skoraði fjögur mörk í hollensku úrvalsdeildinni um helgina.
Arsenal 2 - 1 Chelsea (11:45 á morgun)
Eftir að Drogba er farinn eiga Arsenal loksins séns á sigri gegn Chelsea. Giroud mun opna markareikning sinn eftir að Lampard jafnar úr víti skorar Podolski sigurmarkið eftir stoðsendingu frá Cazorla.
Everton 3 - 2 Southampton (14:00 á morgun)
Fjörugur leikur, vörnin heldur áfram að leka hjá Southampton og Everton sigrar, Jelavic skorar 2 og Fellaini skorar með skalla.
Fulham 1 - 1 Manchester City (14:00 á morgun)
Berbatov skorar fyrir Fulham á fyrstu 5 min með chippu og sýnir stuðningsmönnum City að hann sé í United búningi innan undir þeim til mikillar reiði. Tevez jafnar leikinn á 83. mínútu
Norwich 3 - 1 Liverpool (14:00 á morgun)
Alltaf erfitt að meta svona botnslagi þar sem bæði lið eru að leita eftir sínum fyrsta sigri. Eitthvað segir mér samt að gæði Norwich munu koma í ljós og þeir fara með 3-1 sigur af hólmi, Grant Holt skorar!
Reading 0 - 0 Newcastle (14:00 á morgun)
Daufur leikur.
Stoke 2 - 0 Swansea (14:00 á morgun)
Erfiður róður að sækja stig á Britannia, meira að segja Laudrup og félagar standast ekki löngu innköstin og Route 1 fótboltann, Litli-Stóri framherjaparið hjá Crouch og Owen fer að bera ávöxt og þeir skora báðir!
Sunderland 1 - 1 Wigan Athletic (14:00 á morgun)
Pant ekki horfa á þennan leik!
Manchester United 3 - 3 Tottenham (16:30 á morgun)
United lenta alltaf í vandræðum með Tottenham heima og engin breyting verður á því í ár. Tottenham komast í 0-2 snemma leiks bæði eftir hornspyrnur frá Gylfa, Van Persie og Rooney skora og Giggs bætir við þriðja, Hinn sígraði Jermaine Defoe jafnar í loka andartökum leiksins.
Aston Villa 0 - 2 WBA (15:00 á sunnudag)
Battle of Birmingham, óvæntur útisigur hjá WBA, Lukaku er að byrja vel og heldur því áfram.
QPR 1 - 0 West Ham (19:00 á mánudag)
Junior Hoilett skorar eina mark leiksins í annars mjög fjörugum leik.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson 2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)


