Alfreð Finnbogason fékk þrjá rétta þegar hann tippaði á leiki helgarinnar á Englandi í síðustu viku.
Matthías Vilhjálmsson spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni en hann hefur raðað inn mörkunum með Start í sumar.
Matthías Vilhjálmsson spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni en hann hefur raðað inn mörkunum með Start í sumar.
Manchester City 2 - 1 Sunderland (11:45 á morgun)
City vinnur 2-1 þar sem Titus Bramble lúðrar honum inn eftir horn og kemur Sunderland yfir. Super Mario jafnar og Joleon Lescott skorar winnerinn og láta hina sitja með sárt ennið í þetta skiptið.
Chelsea 3 - 0 Norwich (14:00 á morgun)
Chelsea vinnur 3-0 auðveldlega. Ég hef hrifist af Chelsea liðinu í ár og ekki verið jafn skemmtilegt síðan Hasselbaink og Eiður voru frammi. Mögulega titilskandítatar!
Swansea 2 - 1 Reading (14:00 á morgun)
Swansea hefur byrjað mótið nokkuð vel og hafa gert góð kaup í Michu og Pablo Hernandez. Enda þarf ekki fróðan mann til að sjá að það er nóg að kaupa Spánverja nú til dags til að fá gæði. Tippa á 2-1 í jöfnum leik samt.
WBA 1 - 1 QPR (14:00 á morgun)
Afar óspennandi leikur enda hafa QPR ekkert getað síðan þeir létu King Heiðar Helgu fara. Svo er Steve Clarke þjálfari WBA og hann hugsar bara um varnarleik.
Wigan 2 - 0 Everton (14:00 á morgun)
Tvö skemmtileg lið og hefur Everton sérstaklega spilað vel það sem af er ári. Frammistaða Fellaini á móti Man U í fyrsta leiknum var ómennsk og var Tony Hibbert að sjálfsögðu solid þar líka en ég hef trú á 2-0 Wigan sigri í þetta skiptið þar sem Arouna Koné setur bæði með nýtt aflitað hár.
West Ham 1 - 2 Arsenal (16:30 á morgun)
Fínasti grannaslagur. Trékallinn Andy Carroll er kominn til baka þannig að hann gæti reynst Arsenal mönnum erfiður en ég tel að gæðin sem að Arsenal hafa séu of mikil. Þá sérstaklega Santi Cazorla sem er að mínu viti bestu kaup sumarsins.
Southampton 2 - 0 Fulham (12:30 á sunnudag)
Southampton þarf að fara að girða vörnina hjá sér ef þeir ætla að halda sér uppi. Yfirleitt skorað mikið í leikjum þeirra en Fulham aftur á móti eru annað hvort frábærir eða hræðilegir. Í þessum leik verða þeir hræðilegir og tapa 2-0 fyrir Southampton þar sem Lambert heldur áfram að læða þeim inn.
Liverpool 2 - 1 Stoke (14:00 á sunnudag)
Hræddur við þennan leik því Poolarar virðast ekki getað unnið á Anfield lengur. Kannski af því að það eru engir boltasækjarar þar og boltinn er út af vellinum í 30 mín í hverjum leik. En ég ætla að treysta á Suarez í þessum leik sem er yfirburðarmaður í þessu liði og vonast til að Gerrard fari að axla smá ábyrgð þarna á miðvæðinu aftur.
Tottenham 3 - 0 Aston Villa (14.00 á sunnudag)
Tottenham vinnur létt því mannskapurinn hjá Aston Villa er ekki góður og ég held að Aston Villa verði í fallbaráttu.
Newcastle 0 - 1 Manchester United (15:00 á sunnudag)
Stórleikur helgarinnar og gæti orðið mjög skemmtilegur. Spurning hvort frönskumælandi nýlendan hjá Newcastle hafi roð í vélina hjá Man U. Ég held ekki! Man U vinnur 0-1.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson 2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)



