Matthías Vilhjálmsson fékk fimm rétta þegar hann spáði í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar en hann náði þar með næstbesta árangri tímabilsins til þessa.
Heimir Karlsson, útvarpsmaður, fær tækifæri til að bæta þann árangur í þessari viku. Heimir er harður stuðningsmaður Derby en hann hefur einnig taugar til Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.
Heimir Karlsson, útvarpsmaður, fær tækifæri til að bæta þann árangur í þessari viku. Heimir er harður stuðningsmaður Derby en hann hefur einnig taugar til Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég held að Derby verði um miðja deild í vetur, því miður," segir Heimir um sína menn í Championship deildinni en hér að neðan má sjá spá hans í úrvalsdeildinni.
Tottenham 2 - 1 Chelsea (11:45 á morgun)
Ég held alltaf mikið með Íslendingunum. Ég veit ekki hvað Gylfi fær mikinn séns í þessum leik en ég held að Tottenham taki þetta.
Fulham 3 - 0 Aston Villa (14:00 á morgun)
Fulham liðið er gott og það er engin spurning að það vinnur þennan leik. Aston Villa hefur byrjað tímabilið illa og ég held að það verði í fallbaráttu.
Liverpool 3 - 0 Reading (14:00 á morgun)
Það býr miklu meira í Liverpool liðinu en það er búið að sýna hingað til.
Manchester United 4 - 1 Stoke(14:00 á morgun)
Stoke gæti þess vegna skorað fyrsta markið í leiknum og komist yfir en ég held að United rúlli yfir þá þegar upp verður staðið.
Swansea 1 - 1 Wigan (14:00 á morgun)
Það eru ágætis leikmenn í Wigan og þetta yrðu góð úrslit fyrir þá.
WBA 1 - 2 Manchester City (14:00 á morgun)
WBA verða erfiðir heim að sækja í vetur. Manchester City vinnur en það verður ekki sannfærandi.
West Ham 3 - 0 Southampton (14:00 á morgun)
Southampton á ekki séns, þeir eru fallnir. West Ham er með ágætis markaskorara innanborðs og þeir setja þrjú um helgina.
Norwich 1 - 2 Arsenal (16:30 á morgun)
Arsenal vinnur þennan leik og mun berjast um titilinn á þessu tímabili.
Sunderland 0 - 1 Newcastle (12:30 á sunnudag)
Mínir menn í Newacastle vinna þennan leik.
QPR 1 - 3 Everton (15:00 á sunnudag)
Því miður þá vinnur Everton þetta. Ég held mikið með Mark Hughes en hann á ekki mikinn tíma eftir í starfi held ég.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson 2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)



