Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 26. október 2012 12:00
Elvar Geir Magnússon
Daníel Geir Moritz spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Daníel á treyju merkta Eggerti Gunnþóri Jónssyni.
Daníel á treyju merkta Eggerti Gunnþóri Jónssyni.
Mynd: Úr einkasafni
Daníel Geir Moritz, fyndnasti maður Íslands og stuðningsmaður Arsenal, sér um að spá í leiki helgarinnar í enska boltanum að þessu sinni.

„Ljósasti puntur helgarinnar yrði klárlega sá ef Gylfi myndi detta í gang. Því vil ég óska honum alls hins besta, þótt hann sé í Tottenham," sagði Daníel áður en hann rýndi í spákúluna sína.

Aston Villa 3 - 1 Norwich (á morgun 11:45)
Ég held að Aston Villa sýni snilld sem þeir eiga ekki til lengur og uppfylli Ólaf Arnar vin minn og aðra stuðningsmenn af von um bjartari tíma, sem síðan stenst engan veginn í næstu leikjum.

Reading 1 - 1 Fulham (á morgun 14:00)
Heimamenn komast yfir, en svo eru alltaf Jol hjá Fulham og það verður redding hjá þeim í lokin.

Arsenal 5 - 1 QPR (á morgun 14:00)
Arsenalklúbburinn á Íslandi verður á leiknum í tilefni 30 ára afmælis. Þau fá veislu, enda gestir dagsins ótrúleg vonbrigði í ár. Ramsey, sem ég á aldrei eftir að setja á búninginn minn, á meira að segja eftir að skora.

Stoke 2 - 1 Sunderland (á morgun 14:00)
Menn halda að þetta verði leiðinlegur leikur, en ég held í vonina. Þetta eru samt alveg ferlega leiðinleg lið. Owen kemur inn á og sýnir ekkert.

Wigan 0 - 3 West Ham (á morgun 14:00)
Wigan verða hamraðir í leiknum og Liverpoollegendið Andy Carroll verður í aðalhlutverki. Stórkostlegur leikmaður sem ég skil ekki hvernig farið hefur verið með síðasta eitt og hálfa árið. Hamrarnir eru mitt B lið og á ég meira að segja Ashton treyju. Blessuð sé minning hans (á vellinum).

Man City 7 - 1 Swansea (á morgun 16:30)
Heimamenn verða dýrvitlausir í þessum leik og allt gengur upp, nema eitt. Gulli Gull fer sáttur út á lífið á laugardaginn.

Everton 2 - 2 Liverpool (sunnudag 13:30)
Vorfuglarnir í Everton ákváðu að láta sjá sig þetta haustið og er það virkilega spennandi. Frábær stjóri og skemmtilegt lið. Smá uppgangur hefur verið á gengi gestanna, en þó bara smá. Ég ætla að spá 2-2 jafntefli hérna.

Newcastle 2 - 0 WBA (sunnudag 15:00)
Ég vona að Gaupi verði að lýsa þessum leik því hann talar um heimamenn eins og þeir séu bara vinaleg gata í Breiðholti, Njúkasel að nafni. WBA fara ekki að taka upp á því að sigra á útivelli í þessum leik og fer hann því 2-0.

Southampton 1 - 3 Tottenham (sunnudag 15:00)
Þessi Bóas virðist aðeins vera að sýna lit og hefur virkjað Defoe, sem á það sameiginlegt með Darren Bent að eiga aldrei eftir að fá það kredit sem þeir eiga skilið. Vörnin hjá Tottenham er þó engin snilld og Gúllasið löngu útrunnið. Þess vegna pota heimamenn inn einu.

Chelsea 3 - 1 Man Utd (sunnudag 16:00)
Fyrir utan Arsenal - QPR að þá er þetta líklega leikurinn sem fólk bíður eftir. Ég held að Di Matteo sé bara með svo gott lið í höndunum að vörn United á ekki möguleika. Ég ætla að spá 3-1 fyrir Chelsea. Held að gestirnir finni sig ekki.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner