Rithöfundurinn og fyrrum knattpspyrnumaðurinn Þorgrímur Þráinsson fær það vandasama verk að spá í leiki helgarinnar á Englandi að þessu sinni.
Þorgrímur spáir því meðal annars að Manchester United nái að leggja Arsenal í stórleik helgarinnar. Kíkjum á spána hjá Þorgrími.
Þorgrímur spáir því meðal annars að Manchester United nái að leggja Arsenal í stórleik helgarinnar. Kíkjum á spána hjá Þorgrími.
Manchester United 2 - 1 Arsenal (12:45 á morgun)
Van Persie setur eitt gegn sínum gömlu félögum, tryggir United sigurinn á lokamínútunum. Wenger verður svekktur eins og þegar Valur sigraði Monaco í Evrópukeppninni þegar hann var bossinn þar.
Fulham 0 - 2 Everton (15:00 á morgun)
Fulham er að gera furðugóða hluti miðað við efni og aðstæður en þar sem Leifur Garðars er með svipu yfir mér verð ég að segja útisigur. Everton með rosaflott lið.
Norwich 1 - 1 Stoke (15:00 á morgun)
Tvö miðlungslið, tvö frábær mörk, sitthvort mikilvæga stigið sem gæti skipt sköpum í maí 2013.
Sunderland 0 - 1 Aston Villa (15:00 á morgun)
Ég hef alltaf haft taugar til Aston Villa frá því Valur lék gegn liðinu í Evrópukeppninni 1981. Eingöngu þess vegna tippa ég á útisigur.
Swansea 0 - 2 Chelsea (15:00 á morgun)
Það væri óskandi að sjávarsvanirnir gætu strítt rússadrengjunum en ég held að Chelsea sé aðeins of öflugt. Útisigur til heiðurs Úlfari Mássyni.
Tottenham 4 - 0 Wigan (15:00 á morgun)
Loksins fara hjólin að snúast hjá Tottenham fyrir fullt og allt og Gylfi skorar að minnsta kosti eitt. Með mr. Sigurðsson innanborðs á Spurs eftir að standa sig -- og hann blómstra. Flottur gaur.
West Ham 2 - 1 Manchester City (17:30 á morgun)
Eitt óvænt í anda Sæbba Jóns. Gamli hammerinn yrði ekki sáttur ef ég tippaði á CIty. Sorry Gulli landsliðsmarkvörður.
QPR 0 - 2 Reading (13:30 á sunnudag)
Eftir vonbrigðin gegn Arsenal nær Reading að rífa sig upp og tekur botnliðið í bakaríið. Andi Ívars Ingimars mun svífa yfir vötnum í þessum útisigri.
Liverpool 3 - 1 Newcastle (16:00 á sunnudag)
Þótt púlararnir hafi ekki verið að rokka feitt fram til þessa hef ég trú á þeim núna. Ólsarinn Atli Alexandersson er heitasti stuðningsmaðurinn og ég get ekki svikið hann. Áfram Rush, Ross og Atli.
WBA 2 - 1 Southampton (20:00 á mánudag)
Staðan í töflunni segir heimasigur og Cyrille Regis skorar bæði. Eða er hann kannski hættur, samt bara 54 ára!
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)


