Þorgrímur Þráinsson fékk þrjá rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku.
Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður Vals, fær tækifæri til að toppa þann árangur þessa helgina.
Rúnar Már stendur í ströngu þessa dagana en hann hefur verið á reynslu erlendis og mun í næstu viku halda til Andorra þar sem hann er í íslenska landsliðshópnum sem mætir heimamönnum í vináttuleik.
Kíkjum á spá Rúnars en hann hefur trú á að sínir menn í Manchester United muni rúlla yfir Aston Villa.
Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður Vals, fær tækifæri til að toppa þann árangur þessa helgina.
Rúnar Már stendur í ströngu þessa dagana en hann hefur verið á reynslu erlendis og mun í næstu viku halda til Andorra þar sem hann er í íslenska landsliðshópnum sem mætir heimamönnum í vináttuleik.
Kíkjum á spá Rúnars en hann hefur trú á að sínir menn í Manchester United muni rúlla yfir Aston Villa.
Arsenal 2 - 1 Fulham (15:00 á morgun)
Liðin eru jöfn í deildinni en ég held að Arsenal rífi sig loksins upp því miður og vinni mikilvægan sigur í baráttunni um Evrópudeildarsæti. André Santos skorar winnerinn og Wenger vælir ekki eftir leik.
Everton 2 - 0 Sunderland (15:00 á morgun)
Auðveldur sigur á frekar döpru liði Sunderland, ekkert í gangi þar. Ekki ólíklegt að Baines leggji upp á Fellaini.
Reading 1 - 1 Norwich (15:00 á morgun)
Ekki fræðilegur að ég missi af þessum leik! Verður allt að gerast á Madejski Stadium. 2 mörk, 2 rauð og glórulaus skemmtun. 99% líkur á að Holtarinn skori fyrir Norwich og svo skorar einhver fyrir Reading sem ég þekki ekki.
Southampton 1 - 2 Swansea (15:00 á morgun)
Routledge skorar snemma með hælnum, Lambert jafnar með bringunni og Michu skorar svo á 90 mín með öxlinni.
Stoke 2 - 0 QPR (15:00 á morgun)
Hrikalega erfitt verkefni framundan hjá QPR, ferð ekki á Britannia í einhverja skemmtiferð. Ég fýla Stoke og þeirra aðferðarfræði en QPR verður með allt niðrum sig og Taarabt fær rautt.
Wigan 1 - 1 WBA (15:00 á morgun)
Eru bara geggjaðir leikir á dagskrá þessa helgina? WBA heillar alveg 0 þó þeir séu í 5. sæti, þetta ævintýri fer að taka enda. Vona að Wigan nái í góðan punkt fyrir þúsundþjalasmiðinn Atla Svein Þórarinsson.
Aston Villa 0 - 4 Man Utd (17:30 á morgun)
Ekkert að frétta af þessu blessaða Villa liði. Verður auðvelt fyrir mína menn og van Persie verður með fernu.
Manchester City 2 - 1 Tottenham (13:30 á sunnudag)
Loksins alvöru leikur. Villas-Boas er ekki á réttri leið með þetta Tottenham lið og þess vegna tapa þeir. Gylfi skorar fyrsta markið eftir sendingu frá Bale en seiglan í City skilar þeim 2 mörkum seint í leiknum. Vantar Ekotto í þetta Tottenham lið.
Newcastle 2 - 1 West Ham (15:00 á sunnudag)
Verður hrikalega jafn leikur. Kóngurinn Kevin Nolan skorar með skalla, þvílík seigla í einum manni. Shola Ameobi kemur inn á fyrir Ba á 70 mín, skorar 2 mörk og rífur sig úr að ofan.
Chelsea 3 - 1 Liverpool (16:00 á sunnudag)
Einhverntímann hefði þetta nú talist sem stórleikur. Verður 1-1 í hálfleik, Ramires og Skrtel með skalla. Torres verður tekinn útaf eftir 55 mín eftir skelfilegan leik og í kjölfarið skorar Oscar 2 mörk án þess að hafa mikið fyrir því.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)



