Rúnar Már Sigurjónsson fékk fimm rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar á Englandi í síðustu viku.
Magnús Gylfason, þjálfari Vals, fær tækifæri til að bæta þann árangur í þessari viku en hann er harður stuðningsmaður Manchester United.
Magnús Gylfason, þjálfari Vals, fær tækifæri til að bæta þann árangur í þessari viku en hann er harður stuðningsmaður Manchester United.
Arsenal 2 - 1 Tottenham (12:45 á morgun)
Þetta fer 2-1 fyrir Arsenal en ég vona samt að Gylfi fái að spila og skori fleiri heldur en tvö.
Liverpool 1 - 0 Wigan (15:00 á morgun)
Einn af bestu stjórum deildarinar er hjá Wigan og þetta verður hörkuleikur. Suarez skorar enn eitt markið fyrir Liverpool.
Newcastle 2 - 0 Swansea (15:00 á morgun)
Newcastle rífur sig upp eftir að gamli stjórinn Allardyce kom og tók þá í gegn um síðustu helgi. Snillingarnir frammi, Ba og Cisse, setja hann.
QPR 3 - 0 Southampton (15:00 á morgun)
Núna kemur loksins fyrsti sigur Queens Park Rangers. Ég vona að Hughes bjargi starfinu, það er fullt af United mönnum þarna og ég botna ekkert í þessu gengi þeirra.
Manchester City 4 - 0 Aston Villa (15:00 á morgun)
Aston Villa getur pakkað í vörn og haldið aftur af stóru liðunum en þeir eiga ekki glætu þarna. Þeir eru helmingi lélegra lið en City.
Reading 0 - 0 Everton (15:00 á morgun)
Fellaini verður áfram sjóðheitur og skýtur í stöng og slá en þetta fer 0-0.
WBA 1 - 1 Chelsea (15:00 á morgun)
Chelsea eru búnir að vera góðir en ég tel að þeir séu að spila yfir getu og þegar Terry verður frá þá verður þetta ekki eins öflugt hjá þeim á næstu vikum. WBA er spútnik lið vetrarins og þetta fer 1-1.
Norwich 0 - 2 Manchester United (17:30 á morgun)
Þetta verður enn ein erfiða fæðingin hjá United. Chris Hughton er að gera fína hluti með Norwich en ég held að við náum að vinna þetta.
Fulham 1 - 0 Sunderland (sunnudag 16:00)
Sunderland skorar aldrei á meðan Dimitar Berbatov er vaknaður.
West Ham 1 - 1 Stoke (mánudagur 20:00)
Þetta verður hálsrígsleikur. Það verður mikið um háloftaspyrnur, innköst og læti og þetta gæti orðið fjörugt.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)




