Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 23. nóvember 2012 12:00
Magnús Már Einarsson
Kolbeinn Tumi spáir í leiki helgarinnar
Magnús Gylfason, þjálfari Vals, fékk fjóra rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar á Englandi um síðustu helgi.

Kolbeinn Tumi Daðason, lýsandi á Stöð 2 Sport, spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni.

Hér að neðan má sjá spá Tuma en hann býst við jafntefli í stórleik Chelsea og Manchester City.

Sunderland 3 - 1 West Brom (12:45 á morgun)
Gengi West Brom hefur komið öllum á óvart enda voru flestir búnir að ákveða að Steve Clarke yrði ekkert meira en aðstoðarstjóri. Liðs menn West Brom eru væntanlega í skýjunum eftir sigurinn á Chelsea en tekst ekki að koma sér niður á jörðina fyrir heimsóknina á Ljósvang. Sunderland skorar fleiri en tvö mörk á heimavelli í fyrsta skipti í vetur.

Everton 2 - 1 Norwich (15:00 á morgun)
Everton hefur fatast flugið undanfarið eftir flotta byrjun en Norwich hins vegar í háflugi. Snýst við. Fellaini verður hetjan eftir að Grant Holt kemur gestunum yfir snemma leiks.

Manchester United 5 - 0 Queen Park Rangers (15:00 á morgun)
Lykilmenn United mæta úthvíldir eftir Meistaradeildarfrí og verða á tánum eftir niðurlæginguna á Carrow Road. United tapar ekki þremur leikjum í röð. Ekki möguleiki.

Stoke 1 - 0 Fulham (15:00 á morgun)
Aðeins Manchester City hefur fengið á sig færri mörk en Stoke í deildinni. Vandamálið er að liðið skorar sjaldnast. Hangeland verður í leikbanni sem kemur sér vel í föstum leikatriðum heimamanna. Þeir troða inn einu marki og komast upp að hlið Fulham um miðja deild.

Wigan 1 - 1 Reading (15:00 á morgun)
Reading vann flottan sigur á Everton um síðustu helgi og skildi QPR eftir sem eina liðið án sigurs í deildinni. Gera vel í að ná í stig á Madejski.

Aston Villa 1 - 3 Arsenal (17:30 á morgun)
Þetta verður langt tímabil hjá Aston Villa. Liðið leikið afar illa á tímabilinu ef frá eru taldar 60 mínútur gegn Manchester United. Arsene Wenger nýtur þess að vera fjarri sviðsljósinu eftir komu Benitez. Liðið vinnur á Villa Park eins og það gerir nánast alltaf.

Swansea 1 - 2 Liverpool (13:30 á sunnudag)
Brendan Rodgers og Joe Allen mæta á gamla heimavöllinn og úr verður magnaður leikur. Heimamenn yfirspila Liverpool og leiða í hálfleik. Líkt og í Istanbul mætir nýtt lið Liverpool til leiks. Jöfnunarmark breytir gangi leiksins, Liverpool hefur yfirhöndina og Suarez tryggir sæt þrjú stig.

Southampton 2 - 0 Newcastle (15:00 á sunnudag)
Það eru mikil meiðsli í herbúðum Newcastle og heimamenn nýta sér það. Rickie Lambert skorar bæði fyrir Southampton en hvorugt verður það fallegasta í sögu leikja þessara félaga. Það er hins vegar þetta mark hér

Chelsea 2 - 2 Manchester City (16:00 á sunnudag)
Þvílíkur fyrsti leikur fyrir Rafa Benitez. Tvö félög sem eru í vondum málum í Meistaradeildinni, tveir fyrrum stjórar Inter, félögin sem hafa varið langmestum fjármunum í leikmannakaup undanfarin ár. Stórmeistarajafntefli þar sem Torres tryggir heimamönnum stigið undir lokin.

Tottenham 3 - 0 West Ham (16:00 á sunnudag)
Andre Villas-Boas getur loksins brosað eftir þægilegan sigur. Adebayor verður í banni þannig að Villas-Boas neyðist til að treysta á Jermain Defoe. Hann skorar tvö og Gylfi kemur inná sem varamaður og skorar það þriðja.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Slapp
banner
banner
banner