Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 27. nóvember 2012 15:30
Magnús Már Einarsson
Gylfi Þór Orrason spáir í leiki vikunnar í enska boltanum
Gylfi Þór Orrason.
Gylfi Þór Orrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Kolbeinn Tumi Daðason fékk fmm rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór Orrason, varaformaður KSÍ og formaður dómaranefndar, fær tækifæri til að bæta árangur Tuma en hann tippar á leiki vikunnnar í enska boltanum.

Gylfi er harður stuðningsmaður West Ham en hann er allt annað en ánægður með fótboltann sem Sam Allardyce lætur liðið spila.

,,Ég er svo sem ánægður með stöðuna í deildinni en ekki fótboltann. Menn tala um að það eigi að sætta sig við Sam af því að hann skilar stigum. Ég á hins vegar erfitt með að sætta mig við það að West Ham spili ekki sinn fótbolta. Það er ekki eins mikill missir og það var áður ef maður missir af leikjum," sagði Gylfi við Fótbolta.net í dag.


Sunderland 2 - 0 QPR (19:45 í kvöld)
Þetta tekur tíma fyrir Harry Redknapp og það breytir engu fyrir QPR þó að hann sé mættur í þennan leik.

Aston Villa 1 - 1 Reading (20:00 í kvöld)
Það eru kannski meiri vonbrigði hjá Aston Villa yfir stöðunni í deildinni en Reading er líklega að berjast fyrir lífi sínu og þeir ná stigi.

Chelsea 2 - 1 Fulham (19:45 á morgun)
Chelsea hefur betur eftir hörkuspennandi baráttu á milli nágrannaliðanna.

Everton 2 - 2 Arsenal (19:45 á morgun)
Það er líklegt að það verði mörk í þessum leik Arsenal eru góðir á góðum degi en Everton á heimavelli er ekkert lamb að leika sér við.

Southampton 1 - 2 Norwich (19:45 á morgun)
Norwich er að koma á óvart og Southampton nær ekki að fylgja eftir sigrinum í Championship í fyrra.

Stoke 1 - 0 Newcastle (19:45 á morgun)
Newcastle var spútnikliðið í fyrra en þeim hefur ekki tekist að fylgja því eftir. Lykilmenn eins og Yohan Cabaye eru meiddir og það er slæmt fyrir þá.

Swansea 2 - 2 WBA (19:45 á morgun)
WBA hefur komið mest á óvart og Swansea spilar skemmtilegan fótbolta þannig að þetta verður örugglega skemmtilegur leikur.

Tottenham 0 - 1 Liverpool (19:45 á morgun)
Liverpool fer að rísa og einhvertímann verða þeir að byrja.

Manchester United 3 - 0 West Ham (20:00 á morgun)
United er einfaldlega of stór biti fyrir West Ham United. Mínir menn voru ekki að auka bjartsýnina í Tottenham leiknum um daginn svo ég held að þetta sé raunhæft.

Wigan 1 - 3 Manchester City (20:00 á morgun)
Þessir senterar hjá Manchester City hljóta að fara að komast í gang og þá stendur ekkert í vegi fyrir þeim.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Slapp
banner
banner
banner