Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 30. nóvember 2012 12:00
Magnús Már Einarsson
Doddi litli spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Doddi Litli.
Doddi Litli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Orrason fékk fjóra rétta þegar hann spáði í leiki vikunnar í enska boltanum.

Það er skammt stórra högga á milli í enska boltanum þessa dagana og næsta umferð fer fram um helgina. Þórður Helgi Þórðarson, Doddi Litli, umsjónarmaður Sportrásarinnar á Rás 2 spáir í leikina að þessu sinni.

West Ham 0 - 0 Chelsea (12:45 á morgun)
Benitez slær í gegn með enn einum markalausa leiknum, glöggir áhorfendur taka eftir 23 Benitez out spjöldum sem fara bara fjölgandi.

Arsenal 3 - 2 Swansea (15.00 á morgun)
Þarna mætast tveir af skemmtilegri leikmönnum deildarinnar, Cazorla og Michu og ég held að þetta verði bara spurningin hvor verður í meira stuði. Arsenal eru duglegir að valda vonbrigðum á þessum árstíma en ég segi að þeir bróki sig og bjóði upp á veislu. Cazorla með tvö og Walcott eitt en Michu með bæði fyrir Svani.

Fulham 2 - 0 Tottenham (15:00 á morgun)
Magnað hvað lélegt form Íslendings fær mann til að þola ekki þjálfarann og þá liðið, Berbabrella setur 2 í 2-0 sigri nema að Gylfi byrji leikinn þá setur hann 2 líka 2-2

Liverpool 4 - 1 Southampton (15:00 á morgun)
Þrátt fyrir að hafa gífurlega gaman af Southampton liðinu og gífurlega ekki gaman af Liverpool liðinu þá held ég að Liverpool séu alltaf að fara að taka þennan. Suarez er kannski leiðinlegur gaur en mikið djöfull er hann góður í fótbolta, hann setur þrjú og Stevie G. eitt. 4 - 1 og hægt að kenna markverðinum um öll mörkin.

Manchester City 0 - 1 Everton (15:00 á morgun)
Þetta er leikur, vissulega tapar City ekki heima, þeir eru bara ekkert fyrir það en Everton með með háprúða Belgann og 70´s klámmyndastjörnuna í vinstri bak gætu mögulega gert eitthvað. Ég ætla að vera horney og segja 0-1 sexy Baines með markið.

QPR 3 - 0 Aston Villa (15:00 á morgun)
Jæja leikurinn sem allir hafa beðið eftir, fyrsti sigur Rangers og galdramannsins og þeir taka þetta frekar létt. Jamie Mackie með tvö og Kóreu drengurinn kemur aftur og setur eitt.

WBA 3 - 0 Stoke (15:00 á morgun)
Ég er gífurlega ánægður með WBA og Clarke, eina liðið sem er að gera betri hluti en maður ætlaði, eina liðið sem er ekki vonbrigði og þeir halda upp á það með öruggum sigri. Lukaku skorar tvö og Odemwingie eitt.

Reading 0 - 1 Manchester United (17:30 á morgun)
Þrátt fyrir að sitja á toppi deildarinnar þá er ekki hægt að segja að Man U hafi verið sannfærandi í haust, frekar hægt að segja að liðið hafi verið plain ömurlegt á köflum en þeir halda áfram að stela ósannfærandi sigrum um helgina. Reading er bara frekar lélegt lið og þrátt fyrir alla sénsana sem Man U gefur þeim þá ná þeir ekki að skora en Rafael bjargar deginum fyrir djöflana 0 -1

Norwich 1 - 0 Sunderland (16:00 á sunnudag)
Þetta mun ekki verða skemmtilegasti leikur helgarinnar. Norwich vinnur 1-0 á sjálfsmarki.

Newcastle 1 - 4 Wigan (20:00 á mánudag)
Það eru allir að bíða eftir formi Newcastle síðan í fyrra, bíðið lengur því Wigan, skemmtilegasta lið deildarinnar, verður í banastuði. Ba skorar fyrir Newcastle en Kone skorar loksins að viti fyrir Wigan og Di Santo nær einu. Þið eruð kannski hissa núna, en bíðið.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Slapp
banner
banner
banner